Lýsing námskeiðs og skráning

Viðurkenndur stafrænn markaðssérfræðingur


Metnaðarfullt nám hjá Akademias, í samstarfi við Datera, fyrir alla sem vilja ná góðum tökum á þeirri tækni og aðferðum sem eru að umbreyta markaðsstarfi. Námskeiðið er Akademias Executive MBA áfangi!

Mikil áhersla er á Growth hacking aðferðafræðina. Hún byggir á ódýrum stafrænum aðferðum til að ná mun meiri árangri, á stuttum tíma, við að sækja nýja viðskiptavinum og halda núverandi viðskiptavinum. Markmið námsins er þannig að kenna þátttakendum að hámarka vöxt með stafrænum leiðum, gögnum og tilraunum.

Námið er um 60 klukkustundir og er samsett úr sex áföngum: 1) Stefnumótun og neytendahegðun, 2) Greiningar og mælingar, 3) Vefir og leitarvélabestun, 4) CRM og sjálfvirk markaðssamskipt, 5) Samfélagsmiðlar og 6) Vefauglýsingar. Ennfremur munu bæði innlendir og erlendir markaðssérfræðingar deila reynslusögum, t.d. frá SEM rush, HubSpot, Heimkaup, Bioeffect, Meniga, CCP o.fl.

Umsjónarmenn námsins eru: Tryggvi Freyr Elínarson Þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna hjá  Datera , Guðmundur Arnar Guðmundsson framkvæmdastjóri Akademias og Þórarinn Hjálmarsson hjá Akademias.

Guðmundur Arnar hefur starfað sem markaðsstjóri Íslandsbanka, Nova og WOW air auk þess sat hann í framkvæmdastjórn félaganna. Ennfremur var hann markaðsstjóri Icelandair í Bretlandi og vörumerkjastjóri Icelandair á Íslandi. Guðmundur hefur mikla innlenda og alþjóðlega reynslu af stafrænni markaðssetningu og verið ráðgjafi fyrir tugi fyrirtækja, sem dæmi Fly Play, Eldum rétt og Avis.

Námið er afar hagnýtt og markmiðið er að þátttakendur geti byrjað að nota aðferðirnar, tól og tæki strax í sínum störfum svo fyrirtækin vaxi.

Námið er í boði staðnám, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 

Áfangar:

Stefnumótun, growth hacking og neytendahegðun

Neytendahegðun (t.d. e Behavioural economics)
Greining á neytendum og samkeppni
Hvernig finnum við markaðsinnsæi?
Stefnumótun vörumerkja og staðfærsla
Mikilvægi vörumerkja
Hvernig byggjum við sterk vörumerki
Vaxtarhakk (e. growth hacking) og vöruþróun á Íslandi og erlendis
Mikilvægi tilrauna 

Greiningar og mælingar

Kynning á gagnagreiningu og gagnamiðuðu hugarfari
Google Analytics – Vinnustofa
Google Data Studio - Vinnustofa
Samkeppnisgreining með SEM Rush   
Gögn og gervigreind í markaðsstarfi

Vefir og leitarvélabestun

Hvað er leitarvélabestun?
Tól og tæki fyrir leitarvélabestun
Hitakort og AB prófanir
Hvernig skrifum við texta fyrir leitarvélar (og fólk)
Þarfagreining fyrir vef
Vefstjórnun og skipulag 

CRM og sjálfvirk markaðssamskipti

Hvernig náum við árangri með CRM kerfi?
Hubspot CRM kerfið
Inbound markaðsfærslukynning með efnissköpun
Mailchimp tölvupóstkerfið
Markaðsstarf með tölvupóstum í alþjóðlegu umhverfi
Markaðsstarf með tölvupóstum á Íslandi

Samfélagsmiðlar

Dagleg umsjón samfélagsmiðla (tæki og tól)
Notkun gagna á samfélagsmiðlum
Samfélagsmiðlar í alþjóðlegu umhverfi
Framleiðsla á efni fyrir samfélagsmiðla
Samfélagsmiðlar og viðburðir

Vefauglýsingar

Gerð birtingaáætlana
Auglýsingakerfi Facebook og Instagram
Auglýsingakerfi Google og Youtube
Auglýsingar á íslenskum vefmiðlum
Önnur auglýsingakerfi 

Leiðbeinendur 
Tryggvi Freyr Elínarson, Þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna Datera
Guðmundur Arnar Guðmundsson, Framkvæmdastjóri Akademias og markaðsráðgjafi
Þórarinn Hjálmarsson, forstöðumaður stjórnenda- og tæknifræðslu hjá Akademias

* Leiðbeinendur námsins eru allt að 10 með gestafyrirlesurum.

Meðal gestafyrirlesara

Hagnýtar upplýsingar:

  • Næsta námskeið hefst 19. ágúst 2024, síðustu námskeið hafa verið uppseld svo bókaðu þitt sæti sem fyrst til að missa ekki af.
  • Kennt verður mánudaga 13:00 - 16:00 og þriðjudaga 9:00 - 12:00 í 10 vikur til 22.október.
  • Námið er í boði sem staðnám í Borgartúni 23, fjarnám (í beinni á netinu eða með upptökum þegar hentar) eða sem blönduð námsleið. 
  • Námið er um 60 klst., þ.e. 10 áfangar, 6 klst. hver áfangi + heimapróf.  
  • Námsmat: Verkefni og hópverkefni unnin í tíma og einstaklingslokaverkefni.
  • Verð: 389.000 kr.  
  • Hægt er að greiða með kreditkorti og fá reikning í heimabanka en jafnframt dreifa greiðslum. Hafið samband við bokhald@akademias.is til að dreifa greiðslum.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð fyrir allt að 90% af náminu en jafnframt eru aðrar styrkjaleiðir færar fyrir fyrirtæki (sjá t.d. www.attin.is). Hafðu samband og við aðstoðum asdis@akademias.is

Allar nánari upplýsingar um námið gefur Þórarinn Hjálmarsson, thorarinn@akademias.is.

Akademias Executive MBA

Þetta nám er hluti af executive MBA námi Akademias.

Þetta nám er hluti af Akademias Executive MBA. Executive MBA námið er hannað fyrir metnaðarfullt fólk sem vill mennta sig fyrir tækifæri framtíðarinnar. Með því að raða saman nokkrum námum er hægt að tryggja sér Akademias Executive MBA gráðu, sjá nánar hér.

Smelltu hér ef þú vilt bóka stuttan fund við Dr. Eyþór Ívar Jónsson sem hefur umsjón með Akademias Executive MBA náminu.

 

Leiðbeinendur

Einar Þór Garðarsson

Margrét Lena Kristensen

Tryggvi Freyr Elínarson, þróunarstjóri og sérfræðingur tæknilausna Datera

Þórarinn Hjálmarsson

Akademias Executive MBA

Þetta nám er hluti af executive MBA námi Akademias.

Þetta nám er hluti af Akademias Executive MBA. Executive MBA námið er hannað fyrir metnaðarfullt fólk sem vill mennta sig fyrir tækifæri framtíðarinnar. Með því að raða saman nokkrum námum er hægt að tryggja sér Akademias Executive MBA gráðu, sjá nánar hér.

Smelltu hér ef þú vilt bóka stuttan fund við Dr. Eyþór Ívar Jónsson sem hefur umsjón með Akademias Executive MBA náminu.

Hoobla - Systir Akademias