Lýsing námskeiðs og skráning

Fjarvinna með Microsoft 365

Í þessu námskeiði er skoðað hvaða forrit innan Microsoft 365 henta í fjarvinnu. Við skoðum hvaða forrit henta í samvinnu, samskipti og fleira. Við skilgreinum hvaða forrit á að nota í hvað og hvernig þau eru hugsuð af Microsoft.

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir notendur Microsoft 365 sem vilja vera öruggari í að nota fjarvinnutól Microsoft 365.
Byrjendum í Microsoft 365 er bent á að kynna sér námskeiðin um OneDrive, SharePoint, Teams og Planner.

 

Námskaflar og tími:

  • Inngangur - 1 mínúta.
  • Microsoft 365 app - 3 mínútur.
  • Samskipti - 2 mínútur.
  • Samskipti í Teams - 3 mínútur.
  • Fundir í Teams - 4 mínútur.
  • Samvinna í Teams - 2 mínútur.
  • Vistun skjala - 1 mínúta.
  • OneDrive - 4 mínútur.
  • SharePoint - 3 mínútur.
  • Skjöl í Teams - 5 mínútur.
  • Deiling skjala - 5 mínútur.
  • Planner - 2 mínútur.
  • Samantekt og dæmi - 3 mínútur.

Heildarlengd: 38 mínútur.

Textun í boði:
Enska og íslenska.

Verð:
24.000 kr.

Hagnýtar upplýsingar

  • Fjarnám á netinu, byrjaðu að læra núna!
  • Lærðu á þínum hraða, eins oft og hvar og hvenær sem er yfir 12 mánaða tímabil.
  • Námskeiðið er í boði á sérkjörum fyrir vinnustaði - sjá nánar.
  • Mörg stéttarfélög veita styrk fyrir allt að 100% af verði námskeiðs.
  • Vinnustaðir geta sótt um styrk í gegnum Starfsmenntunarsjóð inni á www.attin.is – óháð starfsmanni.
  • Vinnumálastofnun veitir möguleika á styrk fyrir skjólstæðinga sína fyrir allt að 75% af verði námskeiðs.

 

Leiðbeinandi

Hermann Jónsson

Hermann Jónsson, kennslustjóri tæknináms Akademias, hefur starfað í tölvubransanum í fjölda ára, meðal annars sem framkvæmdastjóri hjá tölvuskólanum iSoft, tölvuskólanum NTV og sem fræðslustjóri Advania.
Hermann hefur margra ára reynslu sem kennari í upplýsingatæknigeiranum.

Hoobla - Systir Akademias