Heilsuefling
Öndunartækni
Að finna jafnvægi líkamlega, andlega og tilfinningalega og nota samsetningu af því sem við vitum að virkar til þess að ná því besta úr hverjum andardrætti.
Fyrir hverja er námskeiðið?
Fyrirlesturinn er ætlaður öllum sem vilja fá betri skilning á mikilvægum andlegum og líkamlegum heilsufarslegum ávinningi þess að anda rétt, draga úr veikindum, streitu og auka einbeitingu og frammistöðu.
Heildarlengd: 47 mínútur.
Andri er heilsuþjálfi og stofnandi ANDRI ICELAND, umbreytandi vellíðunar- og heilsuþjálfunarstöð þar sem áherslan er lögð á að miðla ávinningi kuldameðferðar, öndunaræfinga, hugarorku og hreyfingar, meðal annarra sannreyndra Mind-Body aðferða.
Eftir að hafa notið innblásturs af beinni kennslu frá heimsþekktum höfundum, þjálfurum og kennurum á sviði Mind-Body tækninnar hefur Andri orðið að helsta úrræði þeirra sem sækjast eftir umbreytandi þjálfunarupplifun sem á sér enga líka. Það er einfaldlega eitthvað algjörlega einstakt sem fólk upplifir við það að dýpka skilning sinn á öndun, ögra gömlum skoðanamynstrum og fara ofan í ískalt vatn. Þetta er einföld leið til þess að enduruppgötva getu þína til að ná stjórn á sjálfvirkum streituviðbrögðum og læra að vera í lagi, sama hvað. Þetta er eins og að læra að finna innri kyrrð í auga stormsins.